Fyrirlestur fyrir skóla
Tölvuleikir og nám
Hvernig námsgreinarnar sem ég hélt að ég þyrfti aldrei að nota urðu að tæpum tveimur áratugum í tölvuleikjagerð.
Margir krakkar sjá ekki hvernig það sem þau læra í skólanum tengist því sem þeim finnst skemmtilegt. Í þessum fyrirlestri segi ég sannar sögur úr leikjaiðnaðinum, og í hverri þeirra kemur ein námsgrein við sögu: enska, rúmfræði, landafræði, jarðfræði, ritun og meira að segja dans.
- Fyrir hverjaEfri stig grunnskóla og framhaldsskóla
- Lengd40 til 60 mínútur, með spurningum
- TungumálÍslenska eða enska
- FormÁ staðnum eða í fjarfundi
Ég hélt að ég þyrfti aldrei að nota þetta. Svo fór ég að búa til tölvuleiki.
Níu kaflar, níu verkefni
Hver kafli er eitt verkefni úr alvöru leik og námsgreinin sem það byggði á.
-
Geimkúrekarnir úr bíó og sjónvarpi. Draumurinn var að lifa þessu lífi í EVE Online. Enska · málfræði · stafsetning
Draumurinn um að verða geimkúreki
Fyrsta starfið sem ég sótti um var í raun geimkúreki í EVE Online hjá CCP. Gæðaprófanir gengu ekki upp, svo ég reyndi þjónustuverið: að svara spilurum um allan heim, á ensku, allan daginn. Þar rétt bjargaði ég mér á ensku og stafsetningu.
Villulaus texti er aðgöngumiðinn.
-
EVE Online, CCP Games. Íbúðir inni í geimstöðvum leiksins. Rúmfræði · fatahönnun · arkitektúr
Frá því að verja heiminn til að skapa hann
Eftir að hafa varið þennan stafræna heim langaði mig að skapa hann sjálfur. Til að hanna íbúðir inni í geimstöðvum leiksins þurfti ég allt í einu að kunna rúmfræði, fatahönnun og arkitektúr.
Rúmfræðin byggði geimstöðina.
-
Dust 514, unninn með teymi í Kína. Samfélagsfræði · tungumál · samvinna
Flutti til Kína
Ég flutti til Kína og vann með fólki sem hafði allt aðra menningu, vinnubrögð og hæfni en ég. Að skilja það og vinna saman reyndist helmingurinn af starfinu.
Enginn býr til leik einn.
-
The Machines, söguheimurinn sem ég skrifaði baksöguna fyrir. Íslenska · skapandi skrif
Að búa til tilfinningar
Á markaði með gífurlegri samkeppni þurftum við að skera okkur úr með sterkri sögu og persónum sem fólk tengdist. Einhver þurfti að skrifa baksöguna, og ég dustaði rykið af skapandi skrifum úr íslenskutímunum.
Góð saga er lykillinn að heimi sem fólk tengist.
-
Fortnite, Epic Games. Hreyfingar og dans persónanna. Dans · hreyfing
Dans fyrir Fortnite
Í Fortnite-verkefninu vann ég mikið með dans og hreyfingu. Til að láta stafrænar persónur lifna við þurfti ég að skilja takt, líkamann og tjáningu.
Það sem þú lærir með líkamanum lifir líka á skjánum.
-
The Battle for Iceland, heimurinn sem landafræðin byggði. Landafræði · saga
Víkingarnir og landafræðin
Í Bardaganum um Ísland réðu landafræðin og sagan hönnun vígvalla og landslags. Við sóttum innblástur í raunverulegar fornminjar og búninga svo heimurinn stæðist skoðun.
Kort og sögubækur eru ekki bara prófefni. Þau eru leikjaborð.
-
Íslensk náttúra í sýndarveruleika. Jarðfræði
Íslensk náttúruöfl
Í verkefnum fyrir ferðaþjónustu og landkynningu hef ég miðlað íslenskri náttúru í sýndarveruleika, meðal annars í ferðalagi djúpt ofan í kvikuhólf eldfjalls. Til þess þurfti ég að skilja landmótun og berggerðir.
Jarðfræðin úr skólanum varð grunnurinn að ferðalögum annarra.
-
Pioneers of New Dawn, leikur Arctic Theory, fyrirtækisins sem ég stofnaði ásamt öðrum. Náttúrufræði · jarðfræði · vistfræði · veðurfræði
Eigið fyrirtæki, eigin heimur
Leikurinn sem mér þykir vænst um er lifunarleikur þar sem jarðfræði, veðurfar og vistkerfi ráða öllu. Þegar þú skilur hvernig þessir kraftar vinna saman geturðu byggt úr þeim leikreglur sem koma spilurum á óvart.
Náttúrufræðin varð að leikreglum.
-
Aksturshermir fyrir flugvelli, verkefnið sem ég vinn að í dag. Í dag · allt í einu
Þar sem allt kemur saman
Í dag smíða ég aksturshermi fyrir flugvallaröryggi, þar sem starfsfólk lærir að keyra um flughlöð áður en það sest undir stýri í alvörunni. Þar mætast rúmfræðin, landafræðin, hreyfingin og tæknin í verkefni sem verndar fólk.
Ekkert sem þú lærir fer til spillis. Þú veist bara ekki enn hvenær þú notar það.
Ráðstefnur og fyrirtæki
Ég held líka erindi á ráðstefnum og hjá fyrirtækjum, um leikjaþróun og það sem ég er að vinna að hverju sinni. Hafðu samband ef þú vilt heyra meira.
Bóka fyrirlestur
Sendu mér nokkur orð um hópinn, aldurinn og hvenær hentar. Ef þú vilt vita um kostnað eða efnið, spurðu bara.