Byrjendanámskeið í tölvuleikjagerð
Taught in Icelandic, using Unreal Engine 5 and Blender. You start by installing Unreal Engine and finish with a small obstacle course that someone else can play. All the scripting is done in Blueprints, so you do not need to know how to code. There are no English subtitles.
Kennt á íslensku. Við notum Unreal Engine 5 og Blender. Þú byrjar á að setja upp Unreal Engine og endar með litla þrautabraut sem aðrir geta spilað. Öll forritunin fer fram í Blueprints svo þú þarft ekki að kunna að forrita.
This online course is 14 videos, 5 hours and 15 minutes of pre-recorded material. You buy access to the videos and watch them online, whenever it suits you. There are no classes to attend.
Þetta vefnámskeið er 14 myndbönd, samtals 5 klukkustundir og 15 mínútur af upptökum. Þú kaupir aðgang að myndböndunum og horfir á þau á netinu þegar þér hentar. Þú þarft hvergi að mæta.
Was 39.990 ISK 33% off through 31 October.
Áður 39.990 kr. 33% afsláttur til og með 31. október.
Clips from the chapters
Klippur úr köflunum
Samples from the videos.
Sýnishorn úr myndböndunum.
Your teacher
Kennarinn
I'm Gísli Konráðsson. I have worked in game development for 20 years, on games such as EVE Online, Dust 514, a Fortnite project and Pioneers of New Dawn.
Ég heiti Gísli Konráðsson. Ég hef unnið við tölvuleikjaþróun í 20 ár, meðal annars að EVE Online, Dust 514, Fortnite-verkefni og Pioneers of New Dawn.
More about me Meira um migChapters
Kaflar
Titles are in Icelandic, because that is the language they are taught in. Chapters run from 9 to 46 minutes, so most fit into one evening. Each chapter builds on the one before.
Kaflarnir eru 9 til 46 mínútur að lengd svo flestir passa í eina kvöldstund. Hver kafli byggir á þeim á undan.
-
0118 mín.
Undirbúningur og uppsetning
The Epic Games Launcher, Unreal Engine 5 and a first project from the Third Person template. By the end your character is running around the level.
Epic Games Launcher, Unreal Engine 5 og fyrsta verkefnið, byggt á Third Person-sniðmátinu. Í lokin hleypur persónan um borðið.
-
0225 mín.
Unreal Engine notendaviðmót
The viewport, Content Browser, Details and Outliner. How to move around the world, find your things and not get lost in the menus.
Viewport, Content Browser, Details og Outliner. Hvernig þú ferð um heiminn, finnur hlutina þína og villist ekki í valmyndunum.
-
0312 mín.
Fab og leikmunaskúffan
Ready-made models, materials and sounds from Fab, pulled into your project so you have something to build with.
Tilbúin módel, efni og hljóð af Fab, sótt inn í verkefnið svo þú hafir eitthvað að byggja úr.
-
0421 mín.
Frumgerðir og forskriftir
First steps in Blueprints. You open the character in the Blueprint editor, see how the jump is wired up and build a small prototype of your own.
Fyrstu skrefin í Blueprints. Þú opnar persónuna í Blueprint-ritlinum, sérð hvernig hoppið er tengt saman og smíðar svo litla frumgerð.
-
0531 mín.
Ljós, litir og hljóð
Directional, point and spot lights, materials and colour, and ambient sound. The grey box starts to look like a place.
Directional-, Point- og Spot-ljós, efni og litir, og umhverfishljóð. Grái kassaheimurinn fer að líta út eins og staður.
-
0646 mín.
Sköpun leikjaheima
You build a room lit through its windows, work with landscape and textures, and look at how to lead the player's eye.
Þú byggir herbergi sem lýsist upp í gegnum glugga, vinnur með landslag og áferðir og skoðar hvernig þú leiðir auga spilarans.
-
079 mín.
Þyngdarafl og eðlisfræði
Turning on physics, mass and collision, and a box the character can push around.
Kveikt á eðlisfræði, massi og árekstrar, og kassi sem persónan getur ýtt á undan sér.
-
0822 mín.
Atburðir og hegðun
The Level Blueprint and trigger volumes: things in the level that react when the character walks into a certain spot.
Level Blueprint og kveikjusvæði: hlutir í borðinu sem bregðast við þegar persónan gengur inn á ákveðinn stað.
-
0927 mín.
Hnitakerfi og staðsetningar
X, Y and Z drawn out before we touch the engine. Then location, rotation and scale, in the editor and from Blueprints.
X, Y og Z teiknað upp áður en farið er í vélina. Svo staðsetning, snúningur og stærð, bæði í ritlinum og með Blueprints.
-
1010 mín.
Notendaviðmót
A Widget Blueprint with text and a bar on screen that update when something happens in the game.
Widget Blueprint með texta og stiku á skjánum sem uppfærast þegar eitthvað gerist í leiknum.
-
1143 mín.
Byggjum þrautabraut
Everything from the earlier chapters put together: moving platforms, traps, a goal and a win condition.
Allt úr fyrri köflum sett saman: pallar sem hreyfast, gildrur, markmið og sigurskilyrði.
-
1226 mín.
Leikmunir og leikarar
You build a lamp as a Blueprint with variables, place it again and again, and change every copy from one place.
Þú smíðar lampa sem Blueprint með breytum, setur hann niður aftur og aftur og breytir öllum eintökunum á einum stað.
-
BonusAukaþáttur13 mín.
Auto Material
A landscape material that puts rock, grass and dirt in the right places by slope and height, so you do not have to paint it all by hand.
Landslagsefni sem setur grjót, gras og mold á réttan stað eftir halla og hæð, svo þú þarft ekki að mála allt í höndunum.
-
BonusAukaþáttur12 mín.
Myndavélastjórnun
A Spring Arm camera and smooth switching between camera angles, set up in Blueprints.
Myndavél á Spring Arm og mjúk skipti á milli sjónarhorna, sett upp í Blueprints.
AI in Unreal Engine and Blender
Gervigreind í Unreal Engine og Blender
Both new videos join the course before 31 October and are included when you buy it. Everyone who buys the course is also invited to a fun event, with a chance to ask questions and have a say in some of the details of the course material.
Bæði nýju myndböndin bætast við námskeiðið fyrir 31. október og fylgja með í kaupunum. Þú færð líka boð á skemmtilegan viðburð þar sem þú getur spurt spurninga og haft áhrif á sum smáatriði í kennsluefninu.
How you get the videos
Hvernig þú færð myndböndin
As soon as the payment goes through you get an email with a link to namskeid.oroi.is. You sign in there with the email address you paid with: you get a code by email, there is no password. The videos play on that page, on a computer, tablet or phone, so you need an internet connection to watch. They can't be downloaded. If something goes wrong, reply to the email and I will sort it out.
Um leið og þú hefur greitt færðu tölvupóst með hlekk á namskeid.oroi.is. Þar skráirðu þig inn með netfanginu sem þú borgaðir með. Þú færð sendan kóða í tölvupósti og þarft ekkert lykilorð. Myndböndin spilast á síðunni, í tölvu, spjaldtölvu eða síma, og þú þarft nettengingu til að horfa á þau. Það er ekki hægt að sækja þau. Ef eitthvað fer úrskeiðis geturðu svarað póstinum og ég kippi því í lag.
What this is not
Það sem þetta er ekki
There is no teacher checking your work or answering questions as you go. If that is what you are after, a live class will suit you better. If you're interested in private sessions with a teacher, get in touch for details. The course does not touch C++. And Unreal Engine does not run on a Chromebook or an iPad, so you need a proper Windows PC or a Mac.
Það er enginn kennari sem fer yfir verkefnin þín eða svarar spurningum jafnóðum. Ef það er það sem þú leitar að hentar staðnámskeið þér betur. Ef þú hefur áhuga á einkatímum geturðu haft samband. Það er ekkert C++ í námskeiðinu. Unreal Engine virkar ekki á Chromebook eða iPad og þú þarft því Windows-tölvu eða Mac.
For parents
Fyrir foreldra
There is no age limit. Anyone who can install a program and follow a video should be able to keep up. With younger children it helps if a parent sits in on the first chapter, because that is where the installation happens and it takes a while: the engine alone is about 25 GB.
Það er ekkert aldurstakmark. Sá sem getur sett upp forrit og fylgt myndbandi ætti að ráða við þetta. Það hjálpar yngri krökkum ef foreldri situr með þeim í fyrsta kaflanum því að þar fer uppsetningin fram og hún tekur sinn tíma: vélin ein og sér er um 25 GB.
Questions
Spurningar
Do I have to show up anywhere, or at a set time?
No. These are recordings. You watch them whenever you want.
Do I need programming experience?
No. Everything is done in Blueprints, where you connect blocks instead of typing code.
What computer do I need?
A fairly powerful Windows PC or a recent Mac, with room for about 25 GB for the engine. Epic lists the exact requirements.
Which version of Unreal Engine?
Unreal Engine 5. If you install a newer 5.x release the odd menu may have moved, but the work is the same. The engine is free.
How long do I keep access?
Access does not run out. You can watch the videos again as often as you like.
Can I get a refund?
No. You get every video as soon as you have paid, so the course is not refunded. Watch the trailer and the clips before you buy. Unreal Engine is free, so you can also install it first and see how it runs on your computer. If something does not work, reply to the email you got after buying and I will fix it.
Can my union pay for it?
Many Icelandic unions refund part of a course fee. Check with yours whether that covers online courses. If they ask for an invoice with your name and kennitala, reply to the email you got after buying and I will send you one.
Is it in English?
No. Every chapter is spoken in Icelandic and there are no English subtitles.
Can I give it as a gift?
Yes. When you pay, enter the email address of the person getting the gift. The course is tied to that address, and the email with the link goes there, not to you. It goes out as soon as you have paid, so if the gift is a surprise, buy it on the day you give it.
Þarf ég að mæta einhvers staðar eða á ákveðnum tíma?
Nei. Þetta eru upptökur. Þú horfir á þær þegar þér hentar.
Þarf ég að kunna að forrita?
Nei. Allt er gert í Blueprints, þar sem þú tengir saman kubba í stað þess að skrifa kóða.
Hvaða tölvu þarf ég?
Nokkuð öfluga Windows-tölvu eða nýlegan Mac, með um 25 GB lausu plássi fyrir vélina. Epic birtir nákvæmar kröfur.
Hvaða útgáfa af Unreal Engine er notuð?
Unreal Engine 5. Ef þú setur upp nýrri 5.x útgáfu gæti einhver valmynd hafa færst til en vinnan er sú sama. Vélin er ókeypis.
Hvað gildir aðgangurinn lengi?
Aðgangurinn rennur ekki út. Þú getur horft á myndböndin aftur eins oft og þú vilt.
Get ég fengið endurgreitt?
Nei. Þú færð öll myndböndin um leið og þú hefur greitt og námskeiðið er því ekki endurgreitt. Horfðu á stikluna og klippurnar áður en þú kaupir. Unreal Engine er ókeypis svo þú getur líka sett vélina upp fyrst og séð hvernig hún gengur á tölvunni. Ef eitthvað virkar ekki geturðu svarað póstinum sem þú fékkst eftir kaupin og ég kippi því í lag.
Get ég fengið styrk frá stéttarfélagi?
Mörg stéttarfélög endurgreiða hluta námskeiðsgjaldsins. Athugaðu hjá félaginu þínu hvort það á líka við um vefnámskeið. Ef félagið biður um reikning með nafni og kennitölu geturðu svarað póstinum sem þú fékkst eftir kaupin og ég sendi þér hann.
Get ég gefið þetta í gjöf?
Já. Þegar þú borgar slærðu inn netfang þess sem fær gjöfina. Námskeiðið er tengt því netfangi og pósturinn með hlekknum fer þangað, ekki til þín. Hann fer út um leið og þú hefur greitt svo ef gjöfin á að koma á óvart er best að kaupa hana daginn sem þú gefur hana.
Buy the videos
Kaupa myndböndin
14 videos in Icelandic, 5 hours and 15 minutes, watched online.
14 myndbönd á íslensku, 5 klst. og 15 mín., aðgengileg á netinu.
33% off through 31 October. The code MCP-NOTKUN is applied for you at checkout.
33% afsláttur til og með 31. október. Kóðinn MCP-NOTKUN fer sjálfkrafa inn þegar þú kaupir.

